29.12.2008 | 20:09
Síðasta bloggið.
Þetta verður síðasta bloggið mitt á þessu ári.....sé svo til hvort framhald verður á nýja árinu.
Jólin mín voru ágæt var mikið að vinna en átti góðar samverustundir með fjölskyldunni á milli. Fór í jólaboð á jóladag og hitti þar ættingja og vini, einn ástvin vantaði í hópinn og fann ég vel hvað hans var saknað, en ég veit að hann var hjá okkur, þetta jólaboð er og hefur alltaf verið haldið heima hjá honum. Guð blessi minningu þína elsku frændi minn. Ég fékk margar fallegar jólagjafir m.a. Tvær bækur, diskana með Rúnari Júl og Vilhjálmi Vilhjálms, snyrtivörur að sjálfsögðu frá förðunarfræðingnum nú á gamla að fara punta sig
leðurstígvél, skyrtu, nú fer mín að slá gegn
Tvo yndislega engla alvöru sko
jólakúlu og jólaóróann2008 í safnið mitt... Svo hef ég nú passað vel upp á það að kýla vömbina hvort sem ég er heima eða í vinnunni og hef nákvæmlega ekki neitt samviskubit yfir því hef bara notið þess,og ég ætla að halda áfram að borða góðan mat og tertur fram yfir áramót.
Svo er nú kallinn minn orðinn pungur fékk skírteini um það í dag, en hann hefur verið í fjarnámi í vetur til að ná sér í réttindi. Fékk frábærar einkunnir úr þessum fjórum fögum sem hann var í. 9. 9. 10. 10. Til hamingju pungurinn minn
Svo ætlar hann að halda áfram næsta haust og taka stýrimanninn. Þetta er að verða hálfgert fræðasetur tvær útskriftir á einum mánuði, af þrem fjölskyldumeðlimum.
Svo fer nú að líða að einum leiðinlegasta degi ársins gamlársdegi alla vega finnst mér og henni Tinnu minni það, þolum ekki þessar bombur og sprengjur og svo eru margar minningar tengdar þessum degi ekki allar góðar. Og svo þarf ég nú endilega að eiga afmæli, einmitt þennan dag af 365 dögum ársins. En ég held að þetta bjargist í ár...... ég fór og fékk róandi fyrir hana Tinnu mína hjá dýralækni í dag, var búinn að ráðfæra mig við elskulega bloggvinkonu og hún mælti með þessu fyrir hana. Fékk tvær róandi og kl.21 á gef ég Tinnu minni aðra töfluna...........
og tek svo sjálf inn hina, svo rússum við bara saman inn í nýja árið einhverstaðar undir rúmi í felum 
En elskurnar mínar ég verð heima til að taka á móti gjöfum og blómum til kl 17 á gamlársdag en þá þarf ég að mæta í vinnu en verð komin heim aftur kl 21. 
Elsku bloggvinir og aðrir sem hafa heimsótt síðuna mína, ég þakka ykkur kærleik og elskulegheit á árinu og óska ykkur velfarnaðar og alls hins besta á nýju ári 


23.12.2008 | 16:50
Jólakveðja
Sendi ykkur elsku bloggvinir og öðrum sem líta hér við, mínar bestu jólakveðjur og ég vona að þið hafið það sem allra best um jólin í faðmi fjölskyldna og vina.
Kærleiks og jólaknús til ykkar allra 
21.12.2008 | 13:40
Jólin koma.
16.12.2008 | 23:54
Pása.
12.12.2008 | 12:44
Jóla-hvað.
Það er nú meira tímaleysið hjá mér þessa dagana. Ég afar upptekinn við að gera ekki neitt
Það er þetta tímabil í gangi hjá mér að ég æði úr einu í annað og klára ekkert verk. Ég er að þrífa í einu herberginu, pakka inn jólagjöfum í öðru, skreyta í stofunni, skrifa á jólakort í eldhúsinu og man ekki neitt stundinni lengur hvað ég var að gera. Fæ með reglulegu millibili svitakóf af angist yfir því hvað ég á mikið eftir að gera. Þetta kallast víst stress
Reynið ekki að segja mér að slappa af, jólin komi samt þó ekki sé allt 100 prósent hjá mér. Ég nefnilega veit það að jólin eru að koma, annars væri ég ekki svona stressuð 
Dóttir mín útskrifaðist í gær með flottar einkunnir
og mamma er að sjálfsögðu mjög stolt af stelpunni. Til hamingju elsku Íris mín ég hlakka til að faðma þig og knúsa þegar þú kemur heim en það styttist nú óðum 
Best að fara halda áfram við að klára eitthvað af þessum verkum mínum, eða kannski byrja ég bara á einhverju nýju verki, ég á til dæmis alveg eftir baðherbergið
Knús og kærleikur til ykkar allra og vonandi get ég nú farið að kvitta hjá ykkur 
Suðrnesjaruglurnar: Takk fyrir afmæliskortið og jólakortið þið eruð yndislegar svolítið ruglaðar en samt yndislegar 
8.12.2008 | 00:10
Helgarlok.
Enn ein helgin að líða undir lok. Þessi helgi hefur verið mjög góð hjá mér, en lítið hef ég verið í jólaundirbúning. Tengdapabbi fékk útivistarleyfi frá sjúkrahúsinu á laugardag og sunnudag í nokkra klukkutíma í senn. Ég náði í hann á spítalan og hann var hjá mér og það var frábært að sjá hvað hann lifnaði allur við og hresstist við að koma í annað umhverfi. Hafþór fór með afa sinn í örlitla göngu hér fyrir framan húsið hjá mér og kom hann endurnærður til baka. En fara verður afar varlega því þrekið á langt í land og þolinmæðin hjá elsku tengdapabba líka. Helst vill hann fara að hlaupa um enda mikill harðjaxl. En allt hefur sinn tíma. Bakaði nokkrar vöfflur í dag með kaffinu, sem er nú ekki mikið til frásagnar, en er að gera henni Tinnu minni eitthvað slæmt, hún fékk örlítið að smakka sem hún hefur greinilega ekki þolað og rekur við í laumi og fnykurinn eftir því
Svo skaust ég á jólahlaðaborð í gærkvöldi, en það var haldið í Sveinbjarnargerði, frábær matur en allt of margir réttir var algjörlega sprungin þegar kom að eftirréttunum en þeir voru BARA SJÖ....... Fékk mér bara kaffisopa og svo var farið heim og beint upp í rúm
Svo fer nú að styttast að elsku dóttlan mín komi heim, en hún útskrifast 11 des sem förðunarfræðingur
Og mikið hlakka ég til að hitta hana 
Hafið það gott elsku vinir og takk fyrir öll innlitin
4.12.2008 | 23:12
Afmælisbörn.
Það er nú meira hvað þetta er vinsæll afmælisdagur 4 desember. Það hefur verið farið að lifna aðeins yfir fólki með hækkandi sól þegar getnaður fór fram
og ég veit allavega um tvenna tvíbura sem fæddir eru þennan dag. Tvíburaystkin mín og tvíburabræður hans Tiger bloggvinar. Svo á hún Dóra mín afmæli og Ingimundur hennar Brynju bloggvinkonu.
En ég vil óska öllum afmælisbörnum dagsins til hamingju með daginn 
27.11.2008 | 14:14
Ég vildi að ég væri skógarbjörn.
Í þessu lífi er ég kona.
Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn.
Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala, þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði.
Ég gæti lifað með því.
Áður en þú legst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati.
Ég gæti líkað lifað með því.
Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðir þú ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt.
Ég get sko alveg lifað með því.
Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka.
Ég gæti lifað með þessu.
Ef þú ert birna þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall líkamsfitu.
Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn!!!!!
Og ég bæti við: Skógarbjörn þarf aldrei að moka snjó, skafa af bílnum eða að mæta í vinnu.
Kveðjur til ykkar úr snjóa og óveðurstaðnum Akureyri.
24.11.2008 | 21:42
Jólaról.
Svo var tjúttað á ballinu og staulast heim um fjögur eftir skemmtilegt ball og koddinn faðmaður
Vaknaði ekki fyrr en undir hádegi á sunnudaginn, ég hef nú oft vaknað hressari
Eldaði handa okkur sunnudagsteikina og nýttist hún sem morgunmatur, hádegismatur og miðdegiskaffi, þar sem við borðuðum ekki fyrr en klukkan hálf tvö
Það var líka tölverður gestagangur um þessa daga, Milla mín og Gísli litu við og svo komu ættingjar og tengdafólk í heimsókn. Góð og skemmtileg helgi sem leið allt of fljótt. Svo eru við í jólaundirbúning og gardínustússi í kvöld en bóndinn fer út á sjó á morgun og reynum að klára sem mest af. Takk fyrir indæla samverustund bloggarar kærir sem hittumst um helgina. Dóra mín og stelpur, takk fyrir helgarheimsóknina
Hafið það gott bloggvinir og aðrir sem líta hér við á síðuna
14.11.2008 | 01:02
Glimergella.
glimergellunni. En ég fékk það viðurnefni þegar ég mætti í vinnuna í dag, eins og nýfallinn glitrandi jólasnjór, sem vakti mikla kátínu hjá vinnufélögum.(Það er alltaf gaman að geta glatt aðra)
En þannig var það að ég var svo upptekinn með mína listrænu hæfileika í kortagerð að ég gleymdi tímanum og varð næstum of sein í vinnuna. í flýtinum gleymdi ég að líta í spegil áður en ég stökk af stað og var með frekar óskipulegan glimmerfarða í andlitinu. En ég er búin að lofa að koma með rétt hlutföll af gylltum glimmer í augabrúnunum á morgun
Takk öll elsku vinir fyrir komment og skilaboð þið eruð frábær
Ég verð eitthvað upptekin áfram en það er engin hætta á að ég gleymi ykkur. Takk fyrir að vera til


gunnagusta
jonaa
katlaa
kruttina
lady
milla
ollana
olofk
ringarinn
sigaxel
tigercopper
bailey
skordalsbrynja
edda-kind
duna54
joninathorbjorg
gledibankinn
bommi