Jólaról.

Frábær helgi liðinn, og margt sér til gamans gert. Fór bloggvinahitting með Dóru vinkonu sem var í helgarorlofi hjá mér með dropana sína. Svo var farið á Vélsmiðjuna á ball með viðkomu áður hjá brósa mínum og mágkonu og drukkin nokkur berjaskot,sem virkuðu alveg niður í báðar stórutær Whistling Svo var tjúttað á ballinu og staulast heim um fjögur eftir skemmtilegt ball og koddinn faðmaður Sideways Vaknaði ekki fyrr en undir hádegi á sunnudaginn, ég hef nú oft vaknað hressari Sick Eldaði handa okkur sunnudagsteikina og nýttist hún sem morgunmatur, hádegismatur og miðdegiskaffi, þar sem við borðuðum ekki fyrr en klukkan hálf tvö Grin Það var líka tölverður gestagangur um þessa daga, Milla mín og Gísli litu við og svo komu ættingjar og tengdafólk í heimsókn. Góð og skemmtileg helgi sem leið allt of fljótt. Svo eru við í jólaundirbúning og gardínustússi í kvöld en bóndinn fer út á sjó á morgun og reynum að klára sem mest af. Takk fyrir indæla samverustund bloggarar kærir sem hittumst um helgina. Dóra mín og stelpur, takk fyrir helgarheimsóknina InLove Hafið það gott bloggvinir og aðrir sem líta hér við á síðuna Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Aprílrós, 24.11.2008 kl. 21:47

2 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir laugardaginn Erna mín. Kíki á þig fljótlega

Hafðu það gott ljúfan

Anna Guðný , 25.11.2008 kl. 00:37

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis Erna mín og það er nú ekkert skrýtið að fólk sæki til þín eins yndislegt andrúmsloftið er hjá ykkur.
Ljós og kærleik til þín og Tinnu eruð þið ekki bara tvö í kotinu eins og er.
Þín Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.11.2008 kl. 07:26

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Takk fyrir síðast Erna mín

Huld S. Ringsted, 25.11.2008 kl. 08:02

5 identicon

Bara að kasta kveðju á þig

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 10:05

6 Smámynd: Erna

Takk fyrir innlitið stelpur

Milla mín: Frændi þinn fer á sjóinn í kvöld og tengdamamma er hjá mér og verður eitthvað áfram á meðan tengdapabbi er á spítalanum. En hann er komin af gjörgæslu og hefur það sæmilegt.

Erna, 25.11.2008 kl. 11:58

7 identicon

Það hefur verið stuð á ykkur stelpunum um helgina en það er verst með þennan dag á eftir hann getur verið dálítið erfiður.

En hafðu það gott og ljósið og englarnir veri með þér eins og áður.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 13:28

8 Smámynd: Erna

Já Jónína það var mikið stuð og sennilega hefði verið betra fyrir mig að drekka yndislegu blómadropana þína Knús og kærleikur til þín

Erna, 25.11.2008 kl. 15:02

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Guð voru þið að drekkaaaaaaaaaaaaaaaa!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!??????????????????

Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.11.2008 kl. 19:15

10 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Gaman hjá ykkur það er gott að heyra Þið hafið verið englar með blómadropanaKnús Óla

Ólöf Karlsdóttir, 25.11.2008 kl. 23:18

11 Smámynd: Brynja skordal

komin aftur eftir netleysi semvar frekar langt og erfitt en mikið hefur þetta verið æðisleg helgi hjá ykkur og bara ball og skemmtileg heit og ekki amarlegt að vakna við hrygg og næs eftir góðan svefn flott bara hafðu það ljúft Elskuleg

Brynja skordal, 26.11.2008 kl. 13:36

12 identicon

Búin að þræða allar búðir í Kringlunni uppi og niðri og búin að eyða töluverðum peningum. Það er alltaf gaman að eyða peningum og sjá aðra gera það sama. Er það ekki annars tilgangur lífsins?

Hafðu það gott mín kæra vinkona.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 16:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband